Á Íslandi er skólaskylda fyrir börn á aldrinum 6-16 ára. Eftir að skólaskyldu lýkur fara langflestir unglingar í framhalds- eða tækniskóla til þess að auka möguleika sína, víkka sjóndeildarhringinn og upplifa félagslífið.
Íslenskur vinnumarkaður er sífellt að þróast og því mikilvægt að halda áfram að læra og bæta við þekkingu sína, óháð aldri. Algengt er að fullorðið fólk á Íslandi fari aftur í nám eða taki reglulega námskeið.
Í þessum kafla skoðum við meðal annars uppbyggingu skólakerfisins, fullorðisfræðslu, mat á erlendri menntun og möguleika til íslenskunáms fyrir innflytjendur.
Login
Accessing this námskeið requires a login. Please enter your credentials below!