Fræðsluefni um íslenskt samfélag
New in Iceland
Einfalt og hagnýtt námsefni sem er ætlað að styðja fólk í að fóta sig í daglegu lífi á Íslandi og auðvelda þátttöku í samfélaginu, hvort sem það snýr að vinnumarkaði, menntun, heilbrigðisþjónustu, skólamálum eða samskiptum við opinberar stofnanir
Námskeið
Fræðsluefni í átta köflum um ýmislegt er viðkemur íslensku samfélagi, réttindum, skyldum og venjum.
1. Almennt um Ísland
Sæl og velkomin á New in Iceland námskeiðið. Hér má finna samfélagsfræðslu í átta köflum sem þú getur skoðað á…
2. Ný á Íslandi
Það getur verið flókið og krefjandi að flytja á milli landa og menningarheima. Oft tekur tíma að læra á nýtt…
3. Húsnæði
Hvort sem við leigjum eða eigum eigið húsnæði, þá skiptir miklu máli að hafa öruggan stað til að búa á.…
4. Fjölskyldan
Mörg erum við sammála um að ekkert sé mikilvægara en fjölskyldan. Á Íslandi getur samsetning fjölskyldna verið ólík og gjarnan…
5. Heilbrigðismál
Íslenska heilbrigðiskerfið samanstendur af heilsugæslum, sjúkrahúsum og sérfræðilæknum. Mikilvægt er að vita hvert skal leita til að spara sér óþarfa…
6. Menntun
Á Íslandi er skólaskylda fyrir börn á aldrinum 6-16 ára. Eftir að skólaskyldu lýkur fara langflestir unglingar í framhalds- eða…
7. Atvinna
Þátttaka á vinnumarkaði skiptir miklu máli. Hún gefur okkur tækifæri til að verða fjárhagslega sjálfstæð, nýta hæfileika okkar og taka…
8. Fjármál
Fjárhagslegt sjálfstæði er mikilvæg forsenda þess að einstaklingur geti lifað góðu lífi og tekið virkan þátt í samfélaginu. Í þessum…
Hvað er New in Iceland?
Hér má nálgast fræðsluefni í átta köflum um ýmislegt er viðkemur íslensku samfélagi, réttindum, skyldum og venjum. Um er að ræða einfalt og hagnýtt námsefni sem er ætlað að styðja fólk í að fóta sig í daglegu lífi á Íslandi og auðvelda þátttöku í samfélaginu, hvort sem það snýr að vinnumarkaði, menntun, heilbrigðisþjónustu, skólamálum eða samskiptum við opinberar stofnanir.
Lærðu á þínum eigin hraða
Hægt er að fara yfir allt efnið í sjálfsnámi á netinu og þátttakendur geta lært á sínum eigin hraða, hvenær sem þeim hentar. Efnið er sett fram á skýran og hagnýtan hátt með myndböndum, verkefnum og upplýsingum sem nýtast í daglegu lífi. Markmiðið er að efla sjálfstæði, öryggi og þátttöku innflytjenda og stuðla að inngildingu í íslensku samfélagi.
Þarftu hjálp?
Ef þörf er á frekari stuðningi eða útskýringum má ávallt leita til starfsfólks Vinnumálastofnunnar. Samfélagsfræðslan hentar bæði fólki sem er nýkomið til landsins og þeim sem vilja bæta við þekkingu sína