Sæl og velkomin á New in Iceland námskeiðið. Hér má finna samfélagsfræðslu í átta köflum sem þú getur skoðað á eigin hraða og endurheimsótt eins oft og þú vilt.

Markmið námskeiðsins er að veita einfaldar, hagnýtar og aðgengilegar upplýsingar sem geta auðveldað fyrstu skrefin í íslensku samfélagi og stutt við þátttöku og inngildingu.

Ég mæli með að skoða heimasíðuna mcc.is á meðan þú tekur námskeiðið og það má alltaf leita til ráðgjafaþjónustu Vinnumálastofnunnar ef fleiri spurningar vakna.

Í lok hvers kafla eru stutt verkefni sem vonandi fá þig til að staldra aðeins við og jafnvel tengja efnið við eigið líf.

Gott er að hafa í huga að reglur, þjónusta og aðstæður geta breyst með tímanum. Því er mikilvægt að leita alltaf nýjustu upplýsinga hjá þeim stofnunum og aðilum sem bera ábyrgð á hverju málefni. Þetta námskeið er ætlað sem leiðarvísir og stuðningur, en opinberar upplýsingar frá réttum aðilum eru ávallt besta heimildin.

Við vonum að námsefnið reynist þér gagnlegt og hjálpi þér að kynnast íslensku samfélagi enn betur.

Ekki skráð/ur

Námskeið Inniheldur

  • 14 Kennslustundir
  • 1 Próf
This site is registered on wpml.org as a development site. Switch to a production site key to remove this banner.